pz.is - Dansþáttur ÞjóðarinnarÁ rás
Auglýsing
Árslistar og All-time listar
PartyZone listinn
Saga PartyZone
Plötusnúðarnir
PartyZone kvöldin
PZ diskarnir
Gamlir þættir
PZ playlistinn
Múmíur
Nepal hugbúnaðurSvarta kortið



Forsíða

Næsti þáttur
Party Zone HD - 18. maí

Það verður ýmislegt um að vera í Party Zone á ruv.is á laugardagskvöld. Plötusnúður þáttarins verður engin önnur en DJ Yamaho sem mun bjóða hlustendum upp á eðal sett og hita alla vel upp fyrir hvítasunnuhelgina en það verður nóg að gerast í skemmtanalífinu þessa helgi.

Löngu tímbært sett frá Yamaho í vændum og eitthvað sem enginn ætti að missa af.

Einnig verður hitað rækilega upp fyrir fyrsta Dansa meira kvöld ársins sem fer fram á Kaffibarnum föstudaginn 24. maí og verður spilað stutt upphitunar sett í tilefni að því.

Að auki verður fjallað um nýju Daft Punk plötuna og eitthvað nýmeti verður spilað að vanda, þar á meðal flytjendur eins og Munk, Bicep, Ruxpin og Futuregrapher


Fréttir
NÝ HEIMASÍÐA PARTY ZONE VÆNTANLEG!

VIÐ ERUM LOKSINS BYRJAÐIR AÐ VINNA Í NÝRRI HEIMASÍÐU ÞÁTTARINS. FRÉTTA ER AÐ VÆNTA FLJÓTLEGA!

 

Eina sem við viðhöldum hér á meðan er podcastið og þáttarfærslur.

 

Við bendum á www.ruv.is/partyzone á meðan og á facebook síðurnar okkar. :)


+ Meira

Party Zone á Sónar.

Næstu tveir Party Zone þættir verða Sónar og bara Sónar enda um fáránlega flotta tónlistarhátíð og djammveislu að ræða.   Laugardagskvöldið 9.feb flytjum við seinni upphitunarþáttinn á netvarpi Reykjavíkur,  www.ruv.is/partyzone.  Þar munum við gefa plötusnúðum hátíðarinnar sérstakan gaum og fáum einn eða tvo þeirra í heimsókn.   Í fyrri hlutanum munum spila vel valið stöff frá artistum þeim sem koma fram á hátíðinni.   Einnig munum við upplýsa um hvað verður að gerast í PartyZone/Sónar  sem útvarpað verður beint frá Hörpu á Rás 2 á laugardagskvöldi hátíðarinnar.


+ Meira

Party Zone á Sónar - Sérstakur þáttur 19.janúar.

 Party Zone verður á útopnu á Sónar hátíðinni og eðli máli samkvæmt verðum við með hátíðina á heilanum næstu vikur.  Sérstakur Party Zone  þáttur tileinkaður hátíðinni verður þann 19.janúar n.k.     Við munum spila alla helstu listamenn og hljómsveitir sem koma fram á hátíðinni, koma með fréttir frá hátíðinni, fá aðstandendur hátíðarinnar í viðtal ásamt því að plötusnúðar kvöldsins verða ekki að verri endanum en Tale of Us og Thugfucker munu fylla gestalista þáttarins.   Mjög líklegt má telja að þriðji Sónar plötusnúðurinn munu sömuleiðis slútta þættinum.     Fréttir af miðasölu og miðagjafir munu fá fá sess í þættinum sömuleiðis.

 

Verið stillt á laugardaginn kl 20:00.   


+ Meira

Eldri fréttir
Árslisti Party Zone verður fluttur laugardagskvöldið 26.janúar á Rás 2.
Frábær áramótaþáttur þann 29.des - mikið álag á vefnum
Party Zone í viðhafnarútgáfu á 22. ára afmælinu
Party Zone í viðhafnarútgáfu á Rás 2 13.okt.
+ Meira
Eldri þættir
Party Zone - 11. maí

Plötusnúður þáttarins á laugardagskvöld á ruv.is verður Haukur Heiðar úr FKNHNDSM.  Hann mætir eldhress í þáttinn og ætlar að bjóða hlustendum upp á dúndur sett eins og honum einum er lagið.

Að vanda verður ýmislegt nýmeti spilað og þar á meðal nýtt lag frá Sean Danke en einnig heyrist í flytjendum eins og Peven Everett, Phoenix, Hot Natured, Boris Dlugosch & Roisin Murphy, Radio Slave, The Black Madonna, Sankt Göran og fleirum.


+ Meira

Eldri þættir
Party Zone - 20. apríl
Party Zone - 6. apríl
Páskaþáttur Party Zone
Party Zone listinn fyrir mars!
+ Meira

Spjallið