![]() |
Party Zone HD - 18. maí | |
Það verður ýmislegt um að vera í Party Zone á ruv.is á laugardagskvöld. Plötusnúður þáttarins verður engin önnur en DJ Yamaho sem mun bjóða hlustendum upp á eðal sett og hita alla vel upp fyrir hvítasunnuhelgina en það verður nóg að gerast í skemmtanalífinu þessa helgi. Löngu tímbært sett frá Yamaho í vændum og eitthvað sem enginn ætti að missa af. Einnig verður hitað rækilega upp fyrir fyrsta Dansa meira kvöld ársins sem fer fram á Kaffibarnum föstudaginn 24. maí og verður spilað stutt upphitunar sett í tilefni að því. Að auki verður fjallað um nýju Daft Punk plötuna og eitthvað nýmeti verður spilað að vanda, þar á meðal flytjendur eins og Munk, Bicep, Ruxpin og Futuregrapher. | |
Party Zone - 11. maí | |
Plötusnúður þáttarins á laugardagskvöld á ruv.is verður Haukur Heiðar úr FKNHNDSM. Hann mætir eldhress í þáttinn og ætlar að bjóða hlustendum upp á dúndur sett eins og honum einum er lagið. Að vanda verður ýmislegt nýmeti spilað og þar á meðal nýtt lag frá Sean Danke en einnig heyrist í flytjendum eins og Peven Everett, Phoenix, Hot Natured, Boris Dlugosch & Roisin Murphy, Radio Slave, The Black Madonna, Sankt Göran og fleirum. | |
Party Zone - 20. apríl | |
Í þætti laugardagskvöldsins á ruv.is verður aðalmálið Party Zone listinn fyrir apríl mánuð. Fáránlega heitur listi framundan sem enginn ætti að missa af enda þvílíkt magn af frábærri tónlist að koma út þessa dagana. Meðal þeirra listamanna sem koma til með að berjast um þau fáu sæti á listanum sem í boði eru má nefna Close, Kings of Tomorrow, Daft Punk, Dale Howard, Disclosure, Motor City Drum Ensemble, Nick Warren, Max Cooper, Kris Menace, Maceo Plex, Alphabet City, Woolfy, Man Tear, Konstantin Seabold, NTFO, Sophie, Tale of Us, Surahn, Prins Thomas, Radio Slave, Áme, Alix Alvarez, Dusky, Lars Vegas, Intu-itiv, The Juan Maclean, Green Velvet, Breach, Terranova, Zoo Look, Detroit Swindle, Volta Cab, Trus'Me, The XX og fleiri. | |
Party Zone - 6. apríl | |
Það verðar gamlir félagar sem að verða plötusnúðar kvöldsins í þættinum á laugardagskvöld en það eru engir aðrir en þeir Bjössi Brunahani og Exos. Þeir félagar eru að endurvekja 303 kvöldin og verður fyrsta kvöldið á Faktorý. Til að hita upp fyrir allt þetta verða þeir með 2 tíma sett í þættinum. Ásamt því verður boðið upp á nýmeti með flytjendum eins og The Juan Maclean, Booka Shade, Green Velvet, The XX og fleirum ef tími gefst til. | |
Páskaþáttur Party Zone | |
Eins og oftast áður að þá verður Party Zone með sérstakan þemaþátt um páskana. Í gegnum tíðina hefur verið boðið upp á ýmsa skemmtilega þætti eins og 1990, 1992 og 1995 special, indí dans og sitthvað fleira. Í ár verður þemað Party Zone tímalína þar sem hugmyndin er að spila 1-2 lög frá hverju ári sem þátturinn hefur verið starfandi í tímaröð. Eins og gefur að skilja er af nægu að taka tónlistarlega en það eina sem er ákveðið fyrirfram er að topplög árslistanna verða ekki spiluð enda þau lög hvað oftast spiluð af þessum eldri lögum. Það verður eflaust ákveðið vandamál að velja einungis 1-2 lög frá hverju ári en það gerir þetta bara skemmtilegra og gaman ef hægt er að spila eitthvað sem er ekki endilega alveg augljóst. | |
Party Zone listinn fyrir mars! | |
Í þættinum á laugardagskvöld verður Party Zone listinn fyrir mars mánuð kynntur. Að vanda má búast við svakalega flottum lista enda afar mikið af frábærri tónlist að koma út þessa dagana. Meðal þeirra listamanna sem koma til með að berjast um sæti á listanum má nefna Isolée, Henrik Schwarz, Carl Craig, DJ Koze, Felix Da Housecat, HNNY, Ali Love, Kyodai, Axel Boman, Ashley Beedle, Justus Köhncke, Jupiter Jazz, Slow Hands & Tanner Ross, Nicholas, Kraak & Smaak, Tom Budden & Forrest, Karol XVII & MB Valence, John Grant, Gluteus Maximus, Thievery Corporation, Miguel Migs, Samir Maslo, Sonny Fodera, Eddie C, Saschienne og margir fleiri.
| |
Party Zone HD - 16.mars | |
Stórt partý kvöld í fröken Reykjavík. :)
John Grant tónleikar í Hörpu, Már & Nielsen á Kaffibarnum og RFF afterpartý á Faktorý. Við hitum upp fyrir djamm og stuð kvöldsins með flottri músik frá listamönnum eins og John Grant, Black Strobe, Isolée, FCL, Ashley Beedle o.fl. Plötusnúður kvöldsins er annar helmingur Más & Nielsen, Andrés Nielsen. En hann ætlar að kynda upp mannskapinn fyrir endurkomu þeirra félaga á Kaffibarinn í kvöld. Verið rammstillt á www.ruv.is/partyzone á laugardagskvöldið á slaginu 20:00. | |
Party Zone 9. mars | |
Plötusnúður þáttarins á laugardagskvöld er að koma fram í þættinum í fyrsta skipti í langan tíma en hann var tíður gestur á árum áður. Það er enginn annar en DJ Hendrik sem kemur í heimsókn og verður afar spennandi að heyra hvað hann mun bjóða hlustendum upp á í þetta skiptið. Hendrik mun hita fólk vel upp fyrir Triangular á Volta sem fer fram á laugardagskvöldið en þar kemur hann fram ásamt engum öðrum en BenSol og Casanova. Svakalegt klúbbakvöld í vændum þar sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
| |
Party Zone HD - 2.mars | |
Party Zone - 23. febrúar | |
Party Zone á Sónar - 9 febrúar | |
Party Zone - 2. febrúar | |
Árslisti Party Zone og hið árlega árslistakvöld laugardagskvöldið 26.janúar . | |
Party Zone á Sónar - Sónar þáttur laugardagskvöldið 19.janúar. | |
Party Zone HD - 5. janúar | |
Party Zone - 29. desember | |
Party Zone HD - 22. desember | |
Party Zone HD - 15. desember | |
Party Zone HD - 8. desember | |
Party Zone HD - 1. desember | |
Party Zone HD - 24. nóvember | |
Party Zone HD - 17. nóvember | |
Party Zone HD - 10. nóvember | |
Party Zone HD - 3. nóvember | |