![]() |
3. mars 2006 10:59 |
Party Zone í Mars. |
Það er búið að læna upp þættinum þennan mánuðinn. Við munum drekkja hlustendum í nýmeti og flottum snúðum. Plötsnúðar þáttarins verða ekki af verri endanum: 4.mars er það Óli Ofur og síðan taka fyrstu kynslóðar snúðar þáttarins völdin, 11.mars mun Margeir taka langþráð sett, PZ listinn verður mál málanna þann 18.mars. "Doninn" sjálfur, Grétar G, mun síðan loka mánuðinum, þann 25.mars. |
Nokkrar nýjar plötur koma út í mánuðinum og helling af nýrri tónlist auðvitað.
Takið laugardagskvöldin frá til að meðtaka vikuskammtinn ykkar af alvöru danstónlist. Ef þið missið af þættinum þá náið þið auðvitað í hann hér eða gerist Podcast hlustendur (sjá leiðbeiningar í eldri frétt). |