![]() |
Saga Party Zone
Útvarpsþátturinn Party Zone hóf göngu sína á framhaldsskólastöðinni Útrás haustið 1990. Þá má segja að danstónlist hafi verið óþekkt á Íslandi og þessi þáttur því eini útvarpsþátturinn á sínu sviði. Á þessum tíma var að koma upp ný tónlist með nýrri kynslóð fólks. Um var að ræða nýja tónlist, nýja tísku og ný viðmið. Um var að ræða árdaga danstónlistarinnar og plötusnúðamenningarinnar eins og hún þekkist í dag. Party Zone hefur alltaf verið miðstöð danssenunnar þar sem plötusnúðar senunnar koma fram fyrir alþjóð í útvarpi og spila það heitasta úr heimi alvöru danstónlistar. Einnig hefur þátturinn haldið á lofti merki þeirra skemmtistaða sem hafa verið að gera góða hluti. Þátturinn á nú að baki næstum ellefu ár ár í þessu hlutverki og á að baki mörg hundruð þætti, 4 geisladiska og ótal ógleymanleg uppákomur á skemmtistöðum borgarinnar. Þátturinn, sem var lengst af á X-inu (1993-1998) færði sig um set 1999 og er nú á dagskrá Rásar 2, rásar allra landsmanna. Á þessum 10 árum hefur sérstaða þáttarins breyst því að í dag eru plötusnúðar þáttarins, nýjir sem gamlir, að spila á skemmtistöðum og kaffihúsum ásamt því að flestar útvarpsstöðvar sinna þessari tónlist að einhverju marki. Hlustendur þáttarins hafa samt sem áður ekki gleymt frumkvöðlinum þar sem hann er enn þann dag í dag besti valkostur þeirra sem eru að fylgjast með danstónlist og uppákomum henni tengdri.
Party Zone í dag.
Útvarpsþáttur sem tekur púlsinn á danslífi landsmanna. Heitustu straumar danstónlistarinnar flutt af bestu plötusnúðum þjóðarinnar. Þarna heyrir fólk allt sem skiptir máli varðandi tónlistina, skemmtanalífið, uppákomur og plötusnúða. Þátturinn hefur verið í loftinu allan þennan áratug á einkareknu útvarpsstöðvunum og er frumkvöðull á mörgum sviðum; fyrsti og eini danstónlistarþátturinn lengi vel, fyrstur á internetið 1995-1996, útgefandi fjögurra geislaplatna--fyrstu og einu "mix diska" hérlendis, hefur staðið á bak við margar stórar uppákomur í danslífi Reykjavíkur. Með komu sinni á RÚV2 er hann orðinn "Dansþáttur Þjóðarinnar". Þar mun hann halda áfram að bjóða færustu plötusnúðum heims að koma fram fyrir alþjóð ásamt því að kynna það helsta úr danssenunni.
Umsjónarmenn þáttarins frá upphafi þeir Helgi Már og Kristján Helgi kynna fyrir hlustendum nýjustu strauma danstónlistarinnar, t.d. frumflytja þeir alltaf lög og breiðskífur sem verið er að gefa út hverju sinni. Þar sem þátturinn hefur verið einn framsæknasti útvarpsþáttur landsins síðustu ár þá hafa þeir yfir að ráða annálum danstónlistarinnar frá 1990 (og jafnvel lengra aftur) og eiga því í mikinn laga banka að sækja sem gerir þættinum kleift að búa yfir ófáum klassíkerum úr fortíðinni. Í þættinum eru því einnig spiluð gömul lög í bland við þau nýju. Það gerir þáttinn ávallt drekkhlaðinn af tónlist sem enginn annar er að spila á öldum ljósvakans.
En þann dag í dag eru það plötusnúðarnir sem halda þættinum uppi en einnig má nefna dagskrárliði eins og múmíu kvöldsins, PZ listann fyrir hvern mánuð og skyldukaup vikunnar ásamt fleiru.
Party Zone hyggst halda áfram að standa fyrir uppákomum á skemmtistöðum borgarinnar en PZ kvöldin eiga það sameiginlegt að bjóða alltaf upp á heimsklassa listamenn og fullt hús með trylltri stemningu.