![]() |
Hér eru múmíur eftirfarandi þátta. Til að hlusta á þær þá getið þið einfaldlega sótt þættina í þáttasafninu hér annarsstaðar á síðunni.
sjá nánar í lagalista þáttarins hverju sinni.......................
MÚMÍA 1: Jedi Knights (Tom Middleton & Mark Pritchard) - Catch the Break (1999) Var ofarlega á PZ listanum og síðan á árslistanum 1999. Kom út síðar á frábærri breiðskífu þar sem einnig voru lög eins og One for Maw og May the Funk be with you. Röff og kröftug samsetning á groddalegu húsi og sample-ið í "breakinu" náttúrulega dansgólfa tryllir.
MÚMÍA 2: Technotronic - Pump up the Jam (1989) Rétt ári fyrir fyrsta Party Zone þáttinn var þetta lag að trylla dansgólfin um allan heim. Eitt af stærstu klúbbasmellum sögunnar. Ástæða þess að við erum að flytja það núna er vegna þess að eitt af aðal lögum Miami Ráðstefnunar nú mars var nýtt "bootleg" með þessu lagi sem við erum einnig að spila þessa dagana í þættinum.
MÚMÍA 1: River Ocean ft. India - Love & Happiness (Junior Boys Own Super dub) (1994)
Æðislegt og ódauðlegt lag sem að var meðal annars að finna á fyrsta Party Zone disknum.
MÚMÍA 2: Mighty Dub Katz - It's Just Another Groove (1996)
Eitt af því betra sem að Norman Cook (Fatboy Slim) gaf út á þessum tíma undir Mighty Dub Katz nafninu.
MÚMÍA 1: Les Negresses Vertes - Zobi La Mouce (William Orbit mix) (1989)
Frábært remix frá William Orbit af slagaranum frá þessari frönsku sveit sem að kom til landsins á þessum tíma. Hefur bara elst alveg þokkalega vel.
MÚMÍA 2: Sandals - Feet (The Dust Brothers mix) (1994)
Lag sem hefur elst virkilega vel. Það eru Chemical Brothers sem að standa á bakvið þetta mix en þetta er áður en þeir neyddust til að breyta nafninu.
MÚMÍA 1: L.U.P.O. - Keep it Up (Guitar mix) (1990)
Ansi skemmtilegt lag frá árdögum Party Zone. Italo house eins og það gerðist best á sínum tíma.
MÚMÍA 2: Salsoul Orchestra - Magic Bird of Fire (Johnny Vicious bootleg) (1996)
Bootleg mix af þessu klassíska diskó lagi sem að gerði allt vitlaust á Tunglinu 1996 þegar Rhythm Doctor spilaði það á sumarstartinu okkar það árið.
MÚMíA 1: Erro - Don´t Change (2.sæti árslistans 2001).
Náttúrulega vangefið lag og eitt af betri hús lögum áratugarins. Það er ekkert flóknara en það. Lagið endaði líka í öðru sæti árslistan þetta árið þannig að hér er risamúmía á ferðinni.
MÚMÍA 2: DJ Gregory -Don´t Know Malendro (2002)
Dj Gregory hefur átt ófá frábær lög síðari ár og í raun skrítið að það sé ekki komin breiðskífa frá honum. Þetta er eitt af fyrstu stóru hússlögurunm hans. Hann er snillingur í grípandi anthemum og oftast eru þau instrumental.
Stephane Malca ft. Ken Norris - Next To You (1999)
Lance Ellington - Have We Lost Our Love (1993)
Björk - Violently Happy (Masters At Work Mix) (1993)
Ralph Falcon - Every Now & Then (1992)
The Sunburst Band - Garden of Love (1998)
Spinning Atoms - FF-wind (1994)
Roy Davis Jr. - God of Israel (1999)
Air - Soldissimo (EDC Mix) (1997)